AFGREIÐSLA OG AFHENDING PANTANA
Afgreiðslutími pantana er 2-3 virkir dagar. Þú getur valið að fá pöntunina senda heim til þín eða sækja hana á næsta afhendingarstað hja Dropp
GREIÐSLA OG SENDINGARKOSTNAÐUR
Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum. JustNails geymir engar kortaupplýsingar, en þær eru skráðar hjá Fjarflæði kortaþjónustu í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi.
Pakkar eru sendir innanlands með Dropp og er sendingarkostnaður 1.724kr.
VERÐ
Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti. Just Nails áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og leiðrétta verð í netversluninni ef það hefur verið rangt skráð.
SKIL Á VÖRU
Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá kaupum og fá fulla endurgreiðslu. Þú getur haft samband við [email protected] til að óska eftir skilum eða skiptum fyrir aðrar vörur. Endurgreiðsla fer fram með sama hætti og varan var greidd upphaflega. ATHUGIÐ: Vörur keyptar á útsölu er ekki hægt að skila. Vinsamlegast athugaðu að til að skila vöru þarf hún að vera ónotuð í upprunalegum og óskemmdum umbúðum. Við skil á vöru sem hefur verið afhent er sendingarkostnaður ekki endurgreiddur.
GALLAÐAR VÖRUR
Ef vara reynist gölluð innan tveggja mánaða frá kaupum á viðskiptavinur rétt á nýrri vöru og sendum við hana án endurgjalds. Við greiðum einnig kostnað við að senda gallaða vöruna til baka. Gölluðum vörum er einnig hægt að skila fyrir fulla endurgreiðslu ef viðskiptavinur óskar ekki eftir nýrri vöru.
TRÚNAÐUR
Just Nails heitir fullum trúnaði varðandi upplýsingar sem gefnar eru upp í tengslum við netverslunina og mun undir engum kringumstæðum afhenda þessar upplýsingar til þriðja aðila, nema í tilviki lögreglumáls. Meðhöndlun allra persónuupplýsinga er í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd.
LÖGGJÖF UM NEYTENDAVERND
Ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við á og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003 gilda um þessi viðskipti. Mál sem kunna að rísa vegna þessa samnings skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
HAFA SAMBAND
Ef þú hefur einhverjar ábendingar eða skilaboð til okkar, vinsamlegast hafðu samband við okkur á [email protected]